Íslenska

Skíðaskáli til leigu á einu besta skíðasvæði Noregs, Hafjell. 

Svæðið er rétt fyrir utan Lillehammer, í ca. 15 mínútna fjarlægð. Það eru einnig fleiri skíðasvæði í nágrenninu eins og t.d. Kvitfjell, Skeikampen og Sjusjøen. Þetta svæði er frábært fyrir svig-, fjalla- og gönguskíði ásamt öðru vetrarsporti.

Skálinn er nýbyggður, í  háum gæðaflokki og er til leigu allt árið um kring. 

Í húsinu eru fjögur svefnherbergi sem rúma tólf manns. Þrjú á jarðhæð og eitt á efstu hæð hússins auk svefnsófa í sjónvarpsholi á efstu hæðinni. Það eru tvö stór baðherbergi með sturtu, og auka salerni á efstu hæð. Miðhæðin er hönnuð til að leiða alla fjölskylduna eða vinahópinn saman, en þar er opið eldhús, borðstofa og stofa með frábæru útsýni.  Skálinn er auk þess með gufubaði, þvottavél og þurrkara og fullbúnu elshúsi.

Allir finna brekkur við sitt hæfi.

Skálinn er staðsettur aðeins 10 metra frá skíðabrekkuni, svo meira “ski-in / ski-out” er varla hægt að finna. Staðsetning skálans er með því besta sem skíðaferð getur boðið uppá og er einstakur upphafspunktur fyrir gott frí með ástvinum.

Lyfturnar eru af öllum toga, allt frá toglyftum fyrir litlu skíðagarpana, stólalyftur opnar og lokaðar og svo er einn gondóli eða stór lokuð húslyfta. Skíðakortin fyrir Hafjell gilda einnig  Kvitfjell og á öðrum skíðasvæðum í nágrenninu.

Stórkostlegt útsýni.

Skálinn er með frábært útsýni yfir Guðbrandsdalinn og við rætur fjallsins er bærinn Øyer, en þar eru verslanir, apótek, læknavakt og nokkrir veitingastaðir og hótel. Þarna er blómstrandi ferðaþjónusta allan ársins hring.

Hafjell er frábært fjölskyldusvæði og hentar allt frá byrjendum til atvinnu skíðagarpa. Svæðið er mjög gott er varðar snjó og er opið alla daga frá því svæðið opnar í desember og lokar um mánaðarmót apríl/maí..

Lesa meira um Hafjell – http://www.hafjell.no/en og hægt að finna kort af fjallinu hér.

Lítið mál að komast

Auðvelt er að taka lest til Lillehammer frá flugvellinum á Gardemoen (Osló) og svo ganga bæði strætisvagnar og leigubílar á milli Lillehammer og Hafjell. Það er ekki nauðsynlegt að vera á bíl til að komast á milli þó sumir kjósi þann kost frekar.

Líka opið á sumrinn

Á sumrin er er mikið um skemmtilegar hjóla- og gönguleiðir auk þess að í nágrenninu eru tveir skemmtigarðar, klifurgarðar, go-kart, bobslate og fleira.

Lilleputthammer Amusement Park
https://www.lilleputthammer.no/
Lítill en mjög skemmtilegur fjölskyldugarður með kaffihúsi, leiksýningum og fullt af tækjum fyrir yngri kynslóðina.

Hunderfossen Family Park

Eventyr og opplevelser for hele familien!


Mikið um að vera fyrir alla fjölskylduna, meira en 60 tæki og uppákomur.

Það eru tvö bílastæði sem tilheyra húsinu.

Í boði er að leigja rúmföt og handlæði, auk þess sem við getum hjálpað með skíði og annan útbúnað.

Ef þú vilt bóka er best að nota Airbnb eða Finn.no, getur líka haft samband við okkur með því að fylla út formið á þessum vef.

Við tölum og skrifum á íslensku, ensku og norsku.

Við tökum vel á móti ykkur!

    Íslenska | English | Norsk